langt er síðan ég boggaði og stutt er í enn ein jólin, er ekki komin í neitt jólaskap ennþá en er virkilega að reyna skrapp í kringluna með svölu í gær kláraði að versla jólagjafirnar sem eru nú ekkert hrikalega merkilegar þetta árið en vona að allir verði ánægðir

fékk mér smá laufabrauð með kvöldmatnum til að koma mér í fíling virkaði pínu held ég hafi samt kannski skemmt það smá með því að horfa á hryllingsmynd í eftirrétt.
guðbjörg kom til Íslands síðustu helgi gisti hjá mér eina nótt áður en hún fór norður, við ákváðum að kýkja á djammið enda laaangt síðan síðast, við og alda vorum heima hjá mér fórum í singstar fengum kvartanir yfir of miklum hávaða og fólk fór að hlykkjast að til okkar í partý án gríns hehe æjj reyndar var það bara konan á móti snaaaarklikkuð kona hehe talaði rosalega mikið æjj hún er ágæt greygið.
allavega þá fórum við alltof seint íbæinn því það var svogaaaman hjá okkur hehe kýktum í smá stund inná english en ákváðumað skutlast yfir á hressó að hitta írisi sem kom einmitt heim til íslands með guðbjðrgu. voru voða fáir eitthvað á djamminu fannst mér helmingurinn þarna inni akureyringar tjahh eða svo allavega 1/3.
Ég þoli ekki að sjá manneskju á djamminu sem ég þoli ekki fer alltaf í vont skap við það og djammið verður ekki jafn skemmtilegt þegar ég hugsa til baka þá fer þetta minna í taugarnar á mér núna en fyrir ári síðan semer gott

hehe við vinkonurnar erum samt svo sniðugar á djamminu hehe æjj ætla ekkert nánar útí það en þetta var nú frekar skemmtilegt.
Ég er að vinna á þorláksmessu til 6 og þá er ég komin í jóóóóólafríí vííí fæ samt enga skötu þetta árið mjöööög svekkt meðþað hmmkannski ég eldi mér það bara sjálf íkvöldmatinn jáhá það er sko bara spurning þarf að tékka á eddu með það samt, jæja svo á aðfangadag í hádeginu fer ég í möndlugraut hjá svölu þar sem sem tengafjölskylda hennar verður líka. þetta verður í fyrsta skipti sem ég er ekki hjá mömmu á þorlák eða í möndlugraut þvílíkt skrítið

eeeen svo klukkan 1 þann dag fer ég í flug norður til mömmu minnar ekki ennþá tilbúin í að sleppa því ennþá híhí verð þar svo alveg yfir jólin og áramótin er í fríi á milli jóla og áramóta sem betur fer segi ég nú bara þarf að hvílast eftir allt jóladjammið

sjitt vona að mamma sé ekkiað lesa bloggið núna verður ekki sátt með mig þá obbobb.
æjj ég hefekki farið til akureyrar svo lengi sakna rúntsins, djammsins fólksins alls bara.
ég var ekkert smá dugleg í dag samt og eiginlega bara helgina þreif íbúðina þreif allann þvottinn og já bara alles fór í vinnuna, svaf ekki lengur en til hádegis og já fór í búðir miiiiikið afrek
jæja efa það að ég blogga mikið fyrir jólin og óska ykkur því bara gleðilegra jóla og farsæls komandi árs





æm ádí